Vinsælasta ferðin okkar!

Öskjuferð

Askja og Herðubreiðarlindir!

Kæru gestir,

Við höfum opna fyrir Öskju ferðir frá 25. júní 2023 á heimasíðunni okkar en gætum opnað fyrr ef færð og opnun á vegi opnast fyrr. Sendið okkur email, myvatntours@gmail.com og pantið þar ef dagsetning er ekki komin inn á heimasíðunni.

Við gætum þurft að sameina bókanir frá mismunandi dögum til þess að ná lágmarksfjölda. Þ.e. þú bókar kannski á þriðjudegi en við gætum þurft að færa ferðina til miðvikudags. Við minnum einnig á að þú getur líka alltaf fært bókunina þína eftir þínum þörfum eða fengið inneignarnótu. Ef við þurfum að færa bókunina þína og sérð ekki fram á að komast með okkur að þá endugreiðum við ferðina.

Ef að þið eruð fleiri en 6 saman í hóp og það lítur út fyrir að það sé lokað hjá okkur þá dagsetningu sem að þið óskið þess að fara í Öskju, hafið beint samband við okkur og við finnum lausn á því.

Pantið ferðina í gegnum netfangið okkar myvatntours@gmail.com eða hringið í okkur 861-1920.

Farið er frá Mývatnssveit sem leið liggur upp á hálendið. 

Ferðin tekur um 3-4 klukkustundir að komast upp á Öskjuplan þar sem gengið er inn að Öskjuvatni. Gangan tekur um 35 mínútur og er löng en flat er inn að vatni. Á leiðinni upp á plan er stoppað við ýmsa fegurðarstaði eins og Grafarlandaá, Herðubreiðarlindir og Jökulsá á Fjöllum. Þegar er komið er upp á plan þá er stoppað þar um 2 til 3 tíma, fer eftir veðri og fjölda. 

Nægur tími til að ganga og skoða sig um og jafnvel fá sér sundsprett í Víti, þegar aðstæður leyfa. Síðan er stoppað í Drekagili á leið til baka. Þar er hægt að setja niður og jafnvel ganga inn Drekagil. 

Við erum að koma til baka á milli 19 og 20 á kvöldin.

Vinsamlegast takið með:

1) Hlý föt og góða skó, þar sem veðrið á hálendinu er ófyrirsjáanlegt og getur breyst mjög skyndilega.

2) Mat fyrir daginn. Það eru engar búðir eða veitingastaðir á leiðinni.

3) Handklæði ef þið viljið baða ykkur í Víti (ef aðstæður leyfa).

4) Athugið að það gæti þurft að ganga í snjó frá bílastæðinu í Öskju að Öskjuvatni, svo það er betra að vera með góða skó og auka hlý föt.

 
Brottför:  Rútan fer frá skrifstofunni okkar, Arnarnes, Vegur númer. 848. 2 km sunnan við Reykjahlíð. 
Arnarnes, 660 Mývatn, Iceland
 
Tímalengd:  12 klukkutímar

Book